
KAFFIÐ OKKAR
KAFFIÐ OKKAR
Gæði hafa alltaf verið — og munu alltaf vera — í forgrunni hjá Starbucks. Ástin okkar á kaffi er mikil, en gleðin við að deila góðum bolla með öðrum er ekki síður mikilvæg.
Hvort sem þú nýtur kaffis í kyrrð og ró eða í góðum félagsskap, þá á kaffistundin heima að vera hlý, róleg og nærandi. En með okkar mikla úrval getur verið áskorun að finna þann bolla sem hentar þér fullkomlega og þar getum við hjálpað.
Ristunarstílar Starbucks
Kaffið okkar er flokkað í þrjá ristunarstíla svo þú finnir auðveldlega bragðstyrk og dýpt sem hentar þínum smekk
Létt og mjúkt. Starbucks® Blonde Roast vekur skynfærin á blíðan hátt og skilar ljúffengum bolla með mildum ristunartónum.
Blonde ristun
Mjúkt og í góðu jafnvægi. Miðlungsristunin okkar hentar fullkomlega fyrir hversdagslegar kaffipásur.
Með meiri fyllingu og krafti, er þetta kaffi bragðsterkt með djúpum tón og einkennandi eiginleikum kröftugrar ristunar.
Miðlungs ristun
Meiri fylling og kraftur. Dökk ristun er bragðsterk, með djúpum tónum og einkennandi áferð kröftugrar ristunar.
Dökk ristun

Blonde Espresso

Pike Place

House Blend

Kenya

Sumatra

Espresso Roast
Þú gætir orðið hissa á því hvernig mismunandi aðferðir sem við notum hjá Starbucks til að laga kaffi geta dregið fram ólíka eiginleika í kaffinu þínu. Nýttu þér sérfræðiþekkingu okkar til að ná fram fullum möguleikum kaffisins – og fá hinn fullkomna bolla í hvert skipti.

Pressukanna
Að laga kaffi í pressukönnu heldur í dýrmætar náttúrulegar olíur sem pappírsfilterar eiga til að gleypa og dregur fram alla bragðdýpt kaffisins, ásamt því að gefa því þykka og kraftmikla áferð.
1. Malaðu og mældu
Mundu að kaffi er hægt að líkja við ferskvörur. Kauptu það oft í litlu magni til að njóta þess þegar það er sem ferskast.
2. Bættu við heitu vatni
Til að fá sem besta bragðið úr kaffinu, notaðu hreint vatn.
3. Settu pressuna á og lagaðu kaffið
Settu pressuna aftur ofan á könnuna án þess að ýta henni niður og leyfðu kaffinu að liggja í 4 mínútur.
4. Ýttu niður og helltu
Ýttu pressunni varlega niður þar til hún nær botni pressukönnunar – og njóttu!
Uppáhelling
Uppáhelling er einföld leið til að laga einn bolla af kaffi með hreinu, fullþroskuðu bragði og góðri áferð.
1. Mældu og sjóddu
Mældu það vatnsmagn sem þú ætlar að nota til að laga kaffið, auk smávegis vatns til að skola filterinn. Sjóddu vatnið.
2. Bleyttu síuna
Skolaðu pappasíuna snögglega með heitu vatni og helltu vatninu síðan í burtu. Þetta tryggir að kaffið fái að njóta sín.
3. Mældu og malaðu
Næst mælir þú kaffið. Fyrir uppáhellingu skal nota kaffi malað fyrir kaffisíu úr pappa – það er tiltölulega fínt og líkist sykri. Mældu tvær matskeiðar af kaffi fyrir hverja 180 ml (6 únsur) af vatni.
4. Helltu og bíddu
Notaðu heitt vatn sem er nýkomið af suðu og fylltu kaffisíuna til hálfs til að væta kaffið. Bíddu í 10 sekúndur og leyfðu kaffinu að "blómstra". Þetta hjálpar kaffinu að dreifast jafnt og kalla fram bragðið.
5. Ljúktu við uppáhellinguna og njóttu5. Ljúktu við uppáhellinguna og njóttu
Notaðu skeiðklukku til að kaffið verði sem best. Það ætti að taka um 3 mínútur að laga einn bolla.
Kæld uppáhelling
Kæld uppáhelling er einföld leið til að búa til kröftugt og bragðmikið kælt kaffi – eina könnu í einu.
1. Bleyttu síuna
Skolaðu pappasíuna snögglega með heitu vatni og helltu vatninu síðan í burtu. Þetta tryggir að kaffið fái að njóta sín.
2. Veldu rétta mölun
Notaðu kaffi sem er malað fyrir pappasíu (keiluform). Þetta er fremur fín mölun sem líkist sykri.
3. Mældu rétt magn
Kæld uppáhelling er löguð að tvöföldum styrk og síðan þynnt með ísmolum. Notaðu 4 matskeiðar af kaffi fyrir hverja 180 ml (6 únsur) af heitu vatni.
4. Helltu og bíddu
Notaðu heitt vatn sem er rétt undir suðumarki og fylltu kaffisíuna til hálfs til að væta kaffið. Bíddu í 10 sekúndur og leyfðu kaffinu að „blómstra“. Þetta hjálpar kaffinu að dreifast jafnt og kalla fram bragðið.
5. Ljúktu við upphellinguna
Helltu restinni af vatninu hægt og rólega í litlum, jöfnum hringjum yfir allt kaffið.
6. Bættu ísmolum við
Kaffi frá Afríku er sérstaklega hentugt fyrir kælda uppáhellingu þar sem það er sérstaklega safaríkt og vekur upp sterka sítrustóna.
Uppáhelling í kaffivél
Að notast við kaffivél er þægileg leið til að búa til gott kaffi. Þú getur lagað frábæran kaffibolla í venjulegri kaffivél með réttri mölun og hreinu vatni.
1. Veldu rétta mölun
Þú skalt nota meðalgrófa mölun sem líkist sjávarsalti þegar notast er við síur með flötum botni. Keilusíur krefjast fínni mölunar sem líkist sykri.
2. Mældu rétt magn
Notaðu 2 matskeiðar af nýmöluðu kaffi fyrir hverja 180 ml (6 únsur) af vatni.
3. Lagaðu kaffið og njóttu
Uppáhelt kaffi er alltaf best þegar það er nýtt og ferskt, svo bruggaðu bara það magn sem þú hyggst drekka í einni setu. Það getur gert bragðið dauft ef kaffið er hitað upp aftur.